Fylgi stjórnmálaflokka breytist lítið milli mælinga í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup eða á bilinu 0-1,2 prósentustig. Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, næstum 15% Samfylkinguna, hartnær 14% Vinstri græn, rúmlega 13% Pírata, rösklega 10% Viðreisn, ríflega 9% Miðflokkinn, nánast 7% Framsóknarflokkinn, nálega 4% Sósíalistaflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins. Nær 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Slétt 55% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 30. september 2020. Heildarúrtaksstærð var 9.673 og þátttökuhlutfall var 52,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup