Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um tæplega tvö prósentustig milli mánaða, en tæplega 7% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Breytingar á fylgi annarra framboða eru á bilinu 0,1-1,9 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega fjórðungur segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 19% Samfylkinguna, tæplega 12% Pírata, næstum 11% Viðreisn, ríflega 10% Vinstri græn, nær 10% Miðflokkinn, um 6% Flokk fólksins og rösklega 1% segist myndi kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag.

Nær tíundi hver svarandi segist myndi skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og liðlega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um prósentustig milli mánaða, en tæplega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. september til 1. október 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.460 og þátttökuhlutfall var 53,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup