Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um tæplega þrjú prósentustig og fylgi Flokks fólksins um tæplega tvö prósentustig. Fylgi Sósíalistaflokksins og Pírata eykst hins vegar um tvö prósentustig. Næstum 13% kysu Pírata ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 4% Flokk fólksins. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,3-1,5 prósentustig. Rösklega 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 19% Samfylkinguna, ríflega 11% Vinstri græn, rúmlega 9% Viðreisn og rösklega 6% Miðflokkinn. Ríflega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina eykst um fjögur prósentustig milli mánaða, en liðlega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 7. til 31. janúar 2019. Heildarúrtaksstærð var 4.241 og þátttökuhlutfall var 54,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9-1,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.