Fylgi Miðflokksins eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mælinga, en fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tæplega tvö prósentustig samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Tæplega 10% segjast myndu kjósa Miðflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag og næstum 13% segjast myndu kjósa Samfylkinguna. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,1-1,1 prósentustig. Slétt 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 12% Vinstri græn, tæplega 12% Pírata, liðlega 11% Framsóknarflokkinn, tæplega 10% Viðreisn, 5% Flokk fólksins og sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands. Tæplega 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Tæplega 61% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina, sem er aukning um nær þrjú prósentustig milli mælinga.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 29. mars 2021. Heildarúrtaksstærð var 9.856 og þátttökuhlutfall var 53,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup