Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi Miðflokksins minnkar um rúmlega sex prósentustig og segjast tæplega 6% ætla að kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Fylgi Framsóknarflokksins eykst á hinn bóginn um nær fjögur prósentustig en ríflega 11% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Eins eykst fylgi Sósíalistaflokks Íslands um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða en rösklega 3% segjast myndu kjósa flokkinn. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,2-1,1 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 18% Samfylkinguna, tæplega 12% Vinstri græn, tæplega 11% Pírata og sama hlutfall Viðreisn. Rösklega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um eitt prósentustig milli mánaða, en næstum 45% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. desember 2018 til 1. janúar 2019. Heildarúrtaksstærð var 4.899 og þátttökuhlutfall var 58,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup