Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru að fylgi Samfylkingarinnar eykst en fylgi Viðreisnar minnkar aftur eftir nokkra aukningu í mars. Nær 28% segjast myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag. Það er hækkun um hátt í þrjú prósentustig frá síðasta mánuði og hefur fylgi flokksins ekki mælst hærra síðan í maí 2009. Ríflega7%segjast myndu kjósa Viðreisn og er það lækkun um hátt í tvö prósentustig frá síðasta mánuði. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka, eða á bilinu 0,1 - 0,7 prósentustig. Nær 22%segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 10%Pírata, tæplega 10% Framsóknarflokkinn, næstum 7% Vinstri græn, rúmlega 6% Miðflokkinn, 6% Flokk fólksins og rösklega 4%Sósíalistaflokk Íslands.

Liðlega 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgi_april23.PNG

Nær 39% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina, sem er minnsti stuðningur sem hefur mælst við núverandi ríkisstjórn.

Studningur_april23.PNG

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 28. febrúar 2023. Heildarúrtaksstærð var 9.517 og þátttökuhlutfall var 49,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup