Fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins mælist svipað og í síðustu borgarstjórnarkosningum, en nær 32% segjast myndu kjósa Samfylkinguna og rúmlega 26% Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til borgarstjórnar fram í dag. Slétt 11% segjast myndu kjósa Pírata sem er um fimm prósentustigum hærra hlutfall en kaus flokkinn í síðustu kosningum. Tæplega 11% myndu kjósa Vinstri græn, en rúmlega 8% kusu flokkinn 2014. Næstum 8% myndu kjósa Viðreisn, liðlega 6% Miðflokkinn og rúmlega 3% Flokk fólksins en þessir flokkar voru ekki í framboði í síðustu kosningum. Liðlega 3% myndu kjósa Framsóknarflokkinn sem er hátt í átta prósentustigum lægra hlutfall en kaus Framsókn og flugvallarvini í síðustu kosningum. Um hálft prósent segist myndi kjósa aðra flokka, þar af 0,4% Sósíalistaflokkinn og 0,1% Höfuðborgarlistann. Nær 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag.

Borgin_fylgi_apríl 2018

Ef borgarfulltrúum er skipt milli flokka út frá niðurstöðum könnunarinnar fengi Samfylkingin átta borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn sjö, Píratar þrjá, Vinstri græn og Viðreisn tvo hvor og Miðflokkurinn fengi einn borgarfulltrúa.

Fjöldi borgarfulltrúa_apríl 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?"
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?"

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna í Reykjavik eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 8. mars til 4. apríl 2018, meðal Reykvíkinga 18 ára eða eldri. Heildarúrtaksstærð var 2.127 og þátttökuhlutfall var 54,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 1,1-2,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

1 Úrslit kosninganna 2014 miða við fylgi Framsóknarflokksins og flugvallarvina.