Helsta breyting milli mælinga er að fylgi við Framsóknarflokkinn minnkar um 1,3 prósentustig, en tæplega 8% þeirra sem taka afstöðu kysu flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða,eða um á bilinu 0,1-0,8 prósentustig. Tæplega 29% kysu Samfylkinguna, liðlega 21% Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 10% Pírata, næstum 9% Miðflokkinn, rúmlega 7% Viðreisn, ríflega 6% Flokk fólksins, næstum 6% Vinstri græn og rösklega 4% Sósíalistaflokk Íslands.

Tæplega 17% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og nær 10% myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Rösklega 34% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

fylgi_v01.PNG

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 31. ágúst 2023. Heildarúrtaksstærð var 10.076 og þátttökuhlutfall var 49,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup