Helsta breyting milli mælinga er að fylgi við Framsóknarflokkinn minnkar um 1,5 prósentustig, en næstum 9%þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0-1 prósentustig. Rösklega 28% kysu Samfylkinguna, nær 21% Sjálfstæðisflokkinn, næstum 10% Pírata, liðlega 8% Viðreisn, nær 8% Miðflokkinn, rúmlega 6% Vinstri græn, næstum 6% Flokk fólksins og tæplega 5% Sósíalistaflokk Íslands.

fylgijuni_v01.PNG

Tæplega 16% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 10% myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Næstum 35% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina, sem er 2,6 prósentustiga minni stuðningur en í síðustu mælingu. Þetta er minnsti stuðningur sem mælst hefur við sitjandi ríkisstjórn síðan í júlí 2017.

studningur_v01.PNG

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. júní - 2. júlí 2023. Heildarúrtaksstærð var 11.331 og þátttökuhlutfall var 48,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup