Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru að fylgi Pírata minnkar aftur eftir nokkra aukningu í febrúar og fylgi Viðreisnar eykst milli mánaða. Rúmlega 9% segjast myndu kjósa hvorn flokk. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka, eða á bilinu 0,2 - 1 prósentustig. Fjórðungursegist myndi kjósa Samfylkinguna, ríflega 22%Sjálfstæðisflokkinn, nær 10% Framsóknarflokkinn, liðlega 7% Vinstri græn, rösklega 6% Miðflokkinn, tæplega 6% Flokk fólksins og um 5% Sósíalistaflokk Íslands.

Fylgi stjórnmálaflokka í mars 2023

Næstum 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og nær 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Rösklega 41% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða fólks í mars 2023

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. mars - 2. apríl 2023. Heildarúrtaksstærð var 11.228 og þátttökuhlutfall var 50,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup