Helstu breytingar á fylgi flokka milli mælinga er að fylgi Vinstri grænna minnkar um rösklega tvö prósentustig milli mánaða en tæplega 11% segjast myndu kjósa hreyfinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag. Óverulegar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1 - 0,7 prósentustig. Rúmlega 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 18% Framsóknarflokkinn, tæplega 13% Pírata, tæplega 11% Samfylkinguna, nær 9% Viðreisn, nær sama hlutfall Flokk fólksins, tæplega 5% Sósíalistaflokk Íslands og ríflega 3% Miðflokkinn.

Fylgi flokka í desember 2021

Ríflega 6% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og nær 8% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Næstum 62% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða

Spurt var:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 30. desember 2021. Heildarúrtaksstærð var 7.890 og þátttökuhlutfall var 51,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup