Helstu breytingar á fylgi flokka eru þær að fylgi Viðreisnar eykst um rúmt prósentustig milli mælinga, en nær 11% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,3-1 prósentustig. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Vinstri græn, rösklega 12% Samfylkinguna, 11% Pírata, ríflega 10% Framsóknarflokkinn, rúmlega 7% Miðflokkinn, rösklega 5% Sósíalistaflokk Íslands og liðlega 4% Flokk fólksins. Liðlega 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og nær 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgi flokka júní 2021

Rúmlega 60% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn júní 2021

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. til 31. maí 2021. Heildarúrtaksstærð var 11.779 og þátttökuhlutfall var 48,7%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup