Fylgi Viðreisnar eykst um tæplega tvö prósentustig samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup, en næstum 12% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0-1,2 prósentustig. Tæplega 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 17% Samfylkinguna, næstum 13% Vinstri græn, liðlega 11% Pírata, tæplega 10% Framsóknarflokkinn, 8% Miðflokkinn, nær 4% Flokk fólksins og svipað hlutfall Sósíalistaflokkinn. Nær 10% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Liðlega 59% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 6. til 31. janúar 2021. Heildarúrtaksstærð var 9.019 og þátttökuhlutfall var 51,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.