Nokkur aukning er á stuðningi við ríkisstjórnina samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup en nær þrír af hverjum fimm sem tóku afstöðu segjast styðja stjórnina, sem eru þremur prósentustigum fleiri en í síðustu mælingu.

Helsta breytingin á fylgi flokka frá síðustu mælingu er sú að fylgi Viðreisnar minnkar um nær tvö prósentustig en tæplega 10% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka, eða á bilinu 0,1-1,3 prósentustig. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 17% Samfylkinguna, rösklega 12% Pírata, nær 12% Vinstri græn, um 9% Miðflokkinn, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, liðlega 4% Flokk fólksins og næstum 4% Sósíalistaflokkinn. Ríflega 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rösklega 7% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 30. nóvember 2020. Heildarúrtaksstærð var 9.351 og þátttökuhlutfall var 53,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup