Helstu breytingar á fylgi flokka eru þær að fylgi Vinstri grænna eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mælinga, en fylgi Miðflokksins minnkar um rúmlega eitt prósentustig. Rösklega 14% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rúmlega 8% segjast myndu kjósa Miðflokkinn. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,1-1,0 prósentustig. Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 12% Samfylkinguna og Pírata, liðlega 10% Framsóknarflokkinn, tæplega 10% Viðreisn, 5% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 5% Flokk fólksins. Ríflega 10% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

2021-05-03 Fylgi flokkana.jpg

Nær 61% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn maí 2021

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. mars til 2. maí 2021. Heildarúrtaksstærð var 10.740 og þátttökuhlutfall var 51,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup