Fylgi Vinstri grænna minnkar samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup, en um 12% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,4-1,1 prósentustig. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 16% Samfylkinguna, liðlega 12% Pírata, tæplega 12% Viðreisn, hartnær 10% Miðflokkinn, nánast 8% Framsóknarflokkinn, tæplega 5% Flokk fólksins og næstum 3% Sósíalistaflokkinn. Ríflega 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Nær 57% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. september til 1. nóvember 2020. Heildarúrtaksstærð var 10.937 og þátttökuhlutfall var 54,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup