Lítil ánægja virðist vera með stjórnarsamstarf nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Um helmingur þeirra sem taka afstöðu er óánægður með það, eða nær 51%, nær fjórðungur er ánægður og sama hlutfall hvorki ánægt né óánægt.

Ángæja með stjórnarsamstarf mynd1

Karlar eru ánægðari með stjórnina en konur. Munur mælist á viðhorfi fólks eftir aldri en þeir sem eru yngri en 30 ára eru síður óánægðir með sáttmálann en þeir sem eldri eru. Þeir sem hafa hærri fjölskyldutekjur eru að jafnaði ánægðari með stjórnina en þeir sem hafa lægri fjölskyldutekjur.

Stjórnarsamstarf_mynd1

Munur er á viðhorfi fólks eftir því hvað það kysi ef kosið yrði til Alþingis en mest ánægja er meðal þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn. Nær 75% þeirra eru ánægðir með stjórnarsamstarfið á meðan tæplega 57% þeirra sem kysu Viðreisn eru ánægðir og þriðjungur þeirra sem kysu Bjarta framtíð. Einungis á bilinu 0-3% þeirra sem kysu aðra flokka eru ánægð með stjórnarsamstarfið.

Stjórnarsamstarf_mynd2

Tæplega 65% þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru ánægð með stjórnarsamstarfið. Þegar viðhorf fólks er skoðað eftir því hvað það kaus í alþingiskosningunum í október eru 67% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn ánægð með stjórnarsamstarfið, tæplega 39% þeirra sem kusu Viðreisn og rúmlega 14% þeirra sem kusu Bjarta framtíð, en nær 56% kjósenda Bjartrar framtíðar eru óánægð með samstarfið. Á bilinu 1-6% þeirra sem kusu aðra flokka eru ánægð með stjórnarsamstarfið.

Stjórnarsamstarf_mynd3

Þekking á stjórnarsáttmála

Tæplega þriðjungur telur sig þekkja innihald stjórnarsáttmála nýju ríkisstjórnarinnar vel, 37% telja sig hvorki þekkja það vel né illa og um þrír af hverjum tíu telja sig þekkja það illa.

Þekking á stjórnarsáttmála

Karlar telja sig frekar en konur þekkja það vel og munur virðist á þekkingu fólks eftir aldri. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi telja sig frekar þekkja innihald sáttmálans vel en þeir sem hafa minni menntun að baki, og munur mælist eftir fjölskyldutekjum. Þeir sem kysu Viðreisn ef kosið yrði til alþingis í dag eru líklegri en þeir sem kysu aðra flokka til að telja sig þekkja innihald stjórnarsáttmálans vel, og þeir sem kysu Bjarta framtíð ólíklegri til þess en þeir sem kysu aðra flokka.

Þekking á stjórnarsáttmála_mynd1

Viðhorf til stjórnarsáttmála

Þeir sem þekktu eitthvað til innihalds stjórnarsáttmálans voru spurðir um viðhorf sitt til þess en ekki virðist mikil ánægja með sáttmálann. Ríflega 15% tóku ekki afstöðu en af þeim sem gerðu það eru fjórir af hverjum tíu óánægðir með innihald hans, nær 38% hvorki ánægð né óánægð en rúm 22% ánægð.

Viðhorf til stjórnarsáttmála

Karlar eru ánægðari með innihald sáttmálans en konur og munur mælist á ánægju með hann eftir aldri. Þeir sem hafa hærri fjölskyldutekjur eru að jafnaði ánægðari með sáttmálann en þeir sem hafa lægri fjölskyldutekjur.

Viðhorf til stjórnarsáttmála_mynd1

Þeir sem kysu Sjálfstæðisflokkinn eða Viðreisn ef kosið yrði til alþingis í dag skera sig úr þegar kemur að viðhorfi til stjórnarsáttmálans en mun hærra hlutfall þeirra er ánægt með hann en þeirra sem kysu aðra flokka.

Viðhorf til stjórnarsáttmála_mynd2

Um 56% þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru ánægð með innihald sáttmálans. Þegar hlutfall þeirra sem eru ánægðir með sáttmálann er skoðað eftir því hvað fólk kaus í síðustu alþingiskosningum er það einnig hæst meðal þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn. Aðeins 6% þeirra sem kusu Bjarta framtíð eru ánægð með sáttmálann en 54% óánægð.

Viðhorf til stjórnarsáttmála_mynd4

Spurt var:

  • Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar?
    • 92% tóku afstöðu til spurningarinnar.
  • Hversu vel eða illa þekkir þú innihald stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar?
    • 93% tóku afstöðu til spurningarinnar.
  • Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með innihald stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar?
    • 79% tóku afstöðu til spurningarinnar.
    • 15% tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.
    • 6% voru ekki spurðir. (Þeir sem sögðust ekkert þekkja til innihalds stjórnarsáttmálans voru ekki spurðir þessarar spurningar)

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 1. til 12. febrúar 2017. Heildarúrtaksstærð var 1.402 og þátttökuhlutfall var 59,5%. Einstaklingar voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup