Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli fyrri og seinni hluta ágústmánaðar, eða á bilinu 0,1-1,8 prósentustig. Rúmlega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 12% Vinstri græn, tæplega 12% Samfylkinguna, nær 11% Pírata, næstum 11% Viðreisn, nálega 10% Framsóknarflokkinn, rúmlega 8% Sósíalistaflokk Íslands, 7% Miðflokkinn, um 5% Flokk fólksins og 0,7% Frjálslynda lýðræðisflokkinn. Næstum 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og ríflega 7% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

2021-08-31 Fylgi flokka

Nær 55% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

2021-08-31 stuðningur við ríkisstjórn.jpg

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 16. til 29. ágúst 2021. Heildarúrtaksstærð var 4.329 og þátttökuhlutfall var 53,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 1,0-1,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup