Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0 - 1,7 prósentustig. Nær 28% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, ríflega 25% Sjálfstæðisflokkinn, tæplega 15% Miðflokkinn, rösklega 11% Viðreisn, næstum 6% Framsóknarflokkinn, rúmlega 5% Flokk fólksins, nær 4% Vinstri græn, liðlega 3% Sósíalistaflokk Íslands og rúmlega 2% Pírata.

Ríflega 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_juli2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér