Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,2-1,9 prósentustig. Tæplega 24% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Liðlega 16% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, ríflega 12% Miðflokkinn, 12% Vinstri græn, rúmlega 11% Viðreisn, nær 10% Pírata, næstum 8% Framsóknarflokkinn, rösklega 4% Flokk fólksins og næstum 3% Sósíalistaflokk Íslands.

Nær 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Tæplega 51% þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2.-29. september. Heildarúrtaksstærð var 8.140 og þátttökuhlutfall var 52,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,4%.

Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup