Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna eða á bilinu 0-0,7 prósentustig. Tæplega fjórðungur segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 14% Samfylkinguna, nær sama hlutfall Vinstri græn, 11% Pírata, rösklega 10% Miðflokkinn, næstum 10% Viðreisn, tæplega 8% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og ríflega 3% Sósíalistaflokkinn.

Tæplega 12% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Nær 60% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. maí til 1. júní 2020. Heildarúrtaksstærð var 10.630 og þátttökuhlutfall var 54,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup