Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,1-0,5 prósentustig samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú, 17% Samfylkinguna, nær 12% Pírata, svipað hlutfall Vinstri græn, 10% Viðreisn, liðlega 9% Miðflokkinn, rúmlega 8% Framsóknarflokkinn, rösklega 4% Flokk fólksins og næstum 4% Sósíalistaflokkinn. Nær 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rúmlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Nær 58% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. desember 2020 til 3. janúar 2021. Heildarúrtaksstærð var 10.958 og þátttökuhlutfall var 51,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup