Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Vinstri græn auka fylgi sitt en Samfylkingin tapar fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga eftir mikla fylgisaukningu í janúar, en næstum 15% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Miðflokksins eykst um nær tvö prósentustig en rúmlega 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi Sósíalistaflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig, en 5% segjast myndu kjósa flokkinn, og fylgi Vinstri grænna eykst um rösklega eitt prósentustig en nær 12% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,0-0,8 prósentustig. Slétt 22% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 11% Pírata, ríflega 10% Viðreisn, 7% Framsóknarflokkinn og 4% Flokk fólksins. Næstum 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og liðlega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um nær tvö prósentustig milli mælinga og segjast rúmlega 48% þeirra sem taka afstöðu styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. febrúar til 1. mars 2020. Heildarúrtaksstærð var 7.964 og þátttökuhlutfall var 53,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup