Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um rúmlega tvö prósentustig, en tæplega 10% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka og breytist fylgi þeirra um á bilinu 0,4 - 1,0 prósentustig. Tæplega 26% segjast nú myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 17% Vinstri græn, liðlega 16% Samfylkinguna, næstum 11% Pírata, rúmlega 7% Viðreisn, nær 7% Miðflokkinn, tæplega 6% Flokk fólksins og nær 2% aðra flokka, þar af 1,1% Bjarta framtíð.

fylgi flokka jan 2018

Rösklega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 5% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um rúmlega 3 prósentustig milli mánaða og er sú breyting tölfræðilega marktæk. Tæplega 71% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. til 31. janúar 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.606 og þátttökuhlutfall var 53,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,3-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup.