Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Helsta breytingin er að fylgi við Vinstri græn minnkar um þrjú prósentustig. Ef gengið yrði til kosninga í dag segjast rösklega 21% myndu kjósa Vinstri græn. Ekki er tölfræðilega marktæk breyting á fylgi annarra flokka milli mánaða og breytist fylgi þeirra um á bilinu 0,2 - 1,9 prósentustig. Rösklega 27% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 14% Pírata, ríflega 11% Framsóknarflokkinn, rúmlega 9% Samfylkinguna, tæplega 6% Viðreisn, nær 4% Flokk fólksins og rúmlega 3% Bjarta framtíð. Næstum fjögur prósent nefna aðra flokka, þar af nær 2% Dögun. Rúmlega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka júní 2017


Stuðningur við ríkisstjórn

Tæplega 37% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn júní 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 15. júní til 2. júlí 2017. Heildarúrtaksstærð var 2.870 og þátttökuhlutfall var 56,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 1,0-2,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup