Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru að marktæk lækkun er á fylgi Viðreisnar sem lækkar um tæplega tvö prósentustig og mælist fylgið svipað og það mældist í maí, en tæplega 9% segjast myndu kjósa Viðreisn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,5 prósentustig. Tæplega 25% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 17% Samfylkinguna, næstum 14% Pírata, tæplega 11% Vinstri græn, rúmlega 9% Fram-sóknarflokkinn, tæplega 9% Miðflokkinn, 6% Flokk fólksins og nær 2% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag. Rúmlega 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og sama hlutfall tekur ekki afstöðu eða neitar að gefa hana upp.

Fylgi flokka júlí 2018

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um liðlega fjögur prósentustig milli mánaða, en um helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Stuðningur við ríkisstjórn júlí 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 29. júní til 30. júlí 2018. Heildarúrtaksstærð var 7.060 og þátttökuhlutfall var 50,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup