Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 3 prósentustig milli mánaða, en 36% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Stuðningur við ríkisstjórn maí 2017

Litlar breytingar á fylgi flokka

Litlar breytingar eru á fylgi hvers flokks milli mánaða, eða á bilinu 0,2 til 1,1 prósentustig, og er engin þeirra tölfræðilega marktæk. Tæplega 26% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 24% myndu kjósa Vinstri græn, nær 13% Pírata, liðlega 11% Framsóknarflokkinn, rösklega 9% Samfylkinguna, ríflega 6% Viðreisn, rúmlega 4% Flokk fólksins og tæplega 4% Bjarta framtíð. Næstum þrjú prósent nefna aðra flokka, þar af rúmlega 1% Dögun. Tæplega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 10% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka maí 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. til 31. maí 2017. Heildarúrtaksstærð var 7.133 og þátttökuhlutfall var 54,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup