Nokkrar breytingar hafa orðið á fylgi flokka í Reykjavík miðað við síðustu borgarstjórnarkosningar. Fylgi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Miðflokks hefur minnkað nokkuð á sama tíma og fylgi Pírata, Framsóknarflokks og Vinstri grænna hefur aukist. Rösklega 26% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til borgarstjórnar fram í dag, rúmlega 21% Samfylkinguna, nær 13% Pírata, um 10% Framsókn, tæplega 9% Vinstri græn, rúmlega 8% Viðreisn, næstum 6% Sósíalistaflokk Íslands, tæplega 5% Flokk fólksins og liðlega 2% Miðflokkinn.

Liðlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rösklega 5% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

2022-03-15 Borgarstjórnarkosningar.jpg

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkana?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna í Reykjavík eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 15. febrúar til 13. mars 2022, meðal íbúa Reykjavíkur 18 ára eða eldri. Heildarúrtaksstærð var 48,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9-2,8%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.