Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi Miðflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks minnkar en fylgi Sósíalistaflokks og Pírata eykst.
Breytingar á fylgi annarra flokka (0,7-1,4 prósentustig) eru ekki tölfræðilega marktækar. Ríflega 26% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 25% Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 15% Miðflokkinn, rösklega 11% Viðreisn, ríflega 5% Framsóknarflokkinn, 5% Vinstri græn, tæplega 5% Flokk fólksins,
rösklega 4% Sósíalistaflokk Íslands og næstum 3% Pírata.
Ríflega 5% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

