Hér eru nýjustu upplýsingar Gallup um fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórn. Smelltu á kortin til að stækka og/eða velja tímabil sem þú vilt skoða nánar.

Fylgi flokka ágúst 2017

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórn ágúst 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 10. til 30. ágúst 2017. Heildarúrtaksstærð var 4.108 og þátttökuhlutfall var 52,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-2,1%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup