Sjálfstæðisflokkur og Píratar eru stærstu flokkar landsins, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkur mælist með 26,3% fylgi og Píratar með 25,8 en munurinn ekki marktækur.

fylgi agust 2016

Litlar breytingar eru almennt á fylgi flokkanna á milli mánaða. Rúmlega 16% segjast myndu kjósa Vinstri græn, tæplega 11% Viðreisn, 9% Framsóknarflokkinn, rösklega 8% Samfylkinguna og nær 3% Bjarta framtíð. Um 1% segist myndi kjósa aðra flokka, þ.e. Íslenska þjóðfylkingin mælist með 0,6%, Dögun með 0,2%, Alþýðufylkingin með 0,1% og Flokkur fólksins með 0,1%.Næstum 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórnina er nánast óbreyttur frá síðustu mælingu en tæplega 38% segjast styðja ríkisstjórnina.

stuðningur agust 2016

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 26. júlí til 31. ágúst 2016. Heildarúrtaksstærð var 5.764 og þátttökuhlutfall var
54,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup