Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi Pírata eykst um næstum þrjú prósentustig milli mánaða á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar um nær þrjú prósentustig. Ef gengið yrði til kosninga í dag segjast liðlega 13% myndu kjósa Pírata og rösklega 26% Sjálfstæðisflokkinn. Eins minnkar fylgi Bjartrar framtíðar en ríflega 4% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0 - 0,9 prósentustig. Slétt 24% segjast myndu kjósa Vinstri græn, um 11% Framsóknarflokkinn, rösklega 8% Samfylkinguna og nær 7% Viðreisn. Liðlega sex prósent nefna aðra flokka, þar af tæplega 4% Flokk fólksins og rúmlega 1% Dögun. Nær 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka apríl 2017

Stuðningur við ríkisstjórn

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um nær 3 prósentustig milli mánaða og er sú breyting tölfræðilega marktæk. Tæplega 38% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn maí 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. mars til 1. maí 2017. Heildarúrtaksstærð var 8.206 og þátttökuhlutfall var 56,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup