Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru að Píratar bæta við sig ríflega tveimur prósentustigum en rúmlega 13% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða um á bilinu 0,1-1,6 prósentustig. Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, um 18% Samfylkinguna, rúmlega 13% Vinstri græn, nær 9% Framsóknarflokkinn, tæplega 9% Miðflokkinn, rösklega 8% Viðreisn, liðlega 4% Flokk fólksins og næstum 2% segist myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag. Tæplega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi 1 júní 2018

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um rösklega 4 prósentustig milli mánaða, en nær 54% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn 1 júní 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 31. maí 2018. Heildarúrtaksstærð var 7.113 og þátttökuhlutfall var 56,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,3-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup