Fylgi Pírata minnkar um rösklega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu og segjast ríflega 9% þeirra sem taka afstöðu myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær tvö prósentustig milli mælinga en tæplega 16% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,2 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Nær 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 13% Miðflokkinn, næstum 13% Vinstri græn, rösklega 11% Viðreisn, ríflega 8% Framsóknarflokkinn, um 4% Flokk fólksins og nær sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands.

Næstum 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og sama hlutfall tekur ekki afstöðu eða neitar að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Um helmingur þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 29. júlí til 1. september 2019. Heildarúrtaksstærð var 8.423 og þátttökuhlutfall var 47,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%.

Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup