Helstu breytingar á fylgi flokka í kjölfar kosninga eru þær að Píratar mælast nú með ríflega tveim prósentustigum meira fylgi en þeir fengu í nýafstöðnum alþingiskosningum og Sjálfstæðisflokkurinn tæplega tveim prósentustigum minna fylgi en hann fékk í kosningum. Slétt 11% segjast nú myndu kjósa Pírata, en tæplega 23% Sjálfstæðisflokkinn. Munur á fylgi annarra flokka og niðurstöðum kosninga í september síðastliðnum er innan vikmarka, en liðlega 17% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn, rösklega 13% Vinstri græn, næstum 10% Samfylkinguna, um 9% Viðreisn, nær 8% Flokk fólksins, tæplega 5% Sósíalistaflokk Íslands og ríflega 4% Miðflokkinn.

2021-11-04 Fylgi flokka

Rúmlega 62% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina. Liðlega 6% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og 6% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Stuðningur við ríkisstjórn og stjórnrnarflokka

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. til 31. október 2021. Heildarúrtaksstærð var 8.899 og þátttökuhlutfall var 50,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup