Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup ætla rúmlega 93% þeirra sem taka afstöðu að kjósa Guðna Th. Jóhannesson ef gengið yrði til kosninga í dag á meðan tæplega 7% ætla að kjósa Guðmund Franklín Jónsson. Stuðningur við Guðna hefur aukist örlítið frá byrjun mánaðarins þegar rúmlega níu af hverjum tíu sögðust myndu kjósa Guðna.

Samanburður á fylgi frambjóðenda til forseta Íslands 2020 milli kannana

Fleiri konur en karlar kysu Guðna, eða nær 98% kvenna á móti um 89% karla. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi eru einnig líklegri til að kjósa Guðna en þeir sem hafa minni menntun að baki. Mikill munur er eftir því hvað fólk kysi ef kosið yrði til Alþingis í dag, en stuðningur við Guðmund Franklín er sem fyrr langmestur meðal þeirra sem kysu Miðflokkinn. Nær 53% þeirra sem kysu Miðflokkinn segjast myndu kjósa Guðmund en rúmlega 94% til nær 99% þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna, Framsóknarflokkinn, Viðreisn, Vinstri græn eða Pírata segjast myndu kjósa Guðna. Um 96% þeirra sem styðja ríkisstjórnina kysu Guðna á móti nær 89% þeirra sem styðja hana ekki. Um 98% þeirra sem kusu Guðna eða Andra Snæ Magnússon í síðustu forsetakosningum kysu Guðna nú, og 87% þeirra sem kusu Höllu Tómasdóttur, en aðeins um tveir af hverjum þremur sem kusu Davíð Oddsson og 71% þeirra sem kusu aðra frambjóðendur.1

Greining á fylgi frambjóðenda til forseta Íslands 2020

1Aðrir frambjóðendur voru Ástþór Magnússon, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Hildur Þórðardóttir og Sturla Jónsson en afar fá svör eru á bak við þennan hóp svo túlka ber hlutfall með varúð.

Spurt var:

  • Eftirfarandi eru í framboði til embættis forseta Íslands. Hvorn þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?
  • En hvorn frambjóðandann telur þú líklegra að þú myndir kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 11. til 18. júní 2020. Heildarúrtaksstærð var 1.589 og þátttökuhlutfall var 51,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Vikmörk á fylgi við frambjóðendur eru 1,8%.

Notkun á efni Þjóðarpúls Gallup og tilvitnun í það er heimil svo lengi sem heimilda er getið.