Facebook er stærsti samfélagsmiðillinn á Íslandi en ríflega 9 af hverjum 10 svarendum nota miðilinn vikulega eða oftar á meðan Instagram tekur fram úr Snapchat og mælist næst stærstur. X notendum fækkar en rúm 11% nota X vikulega á meðan TikTok notendum fjölgar. Nú er svo komið að hart nær 20% þjóðarinnar er á TikTok og ef aldurshópurinn 18-29 ára er skoðaður þá eru helmingur þeirra TikTok notendur.
Að ofan má sjá íslenska notendur á samfélagsmiðlum eftir kyni og aldri. Eins og áður er eldra fólk líklegra til að nota Facebook og yngra fólk TikTok og karlmenn líklegri en konur til að nota X og Tinder.
Þessi mæling á notkun samfélagsmiðla er úr Neyslu- og lífstílskönnun Gallup þar sem svarendur svara til um áhugamál, lífstíl og hegðunarmynstur og býður þannig upp á markhópagreiningar. Hægt er að leita í Neyslu- og lífstílkönnun Gallup á gallup.is en aðgangur að gagnasettinu er seldur í áskrift.

