Fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær tvö prósentustig milli mánaða samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og segjast rösklega 15% myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða um á bilinu 0,2 - 1,0 prósentustig. Næstum 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, tæplega 16% Framsóknarflokkinn, nær 15% Pírata, ríflega 8% Viðreisn, sama hlutfall Vinstri græn, tæplega 6% Flokk fólksins, liðlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 5% Miðflokkinn.

Fylgi flokka í ágúst

Næstum 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og tæplega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Nær 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða í ágúst 2022

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. - 31. ágúst 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.719 og þátttökuhlutfall var 48,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup