Helstu breytingar á fylgi flokka eru þær að fylgi Samfylkingarinnar eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mælinga, fylgi Framsóknarflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig og fylgi Viðreisnar minnkar um ríflega tvö prósentustig milli mælinga. Ríflega 12% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 12% Framsóknarflokkinn og næstum 9% segjast myndu kjósa Viðreisn. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0-0,9 prósentustig. Liðlega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 14% Vinstri græn, rúmlega 12% Pírata, rösklega 7% Miðflokkinn, rúmlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og 4% Flokk fólksins. Um einn af hverjum tíu tekur ekki afstöðu eða vill ekki gefa hana upp og 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgi flokka 2021-07-30

Stuðningur við ríkisstjórnina stendur í stað milli mælinga, en næstum 59% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja stjórnina.

Stuðingur við ríkisstjórn 2021-07-30

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. júní til 28. júlí 2021. Heildarúrtaksstærð var 9.522 og þátttökuhlutfall var 48,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup