Helsta breytingin á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Samfylkingar eykst um nær fimm prósentustig og segist liðlega 21% myndi kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í nóvember 2012. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,2 - 1,6 prósentustig. Rösklega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 12% Framsóknarflokkinn og sama hlutfall Pírata, ríflega 7% Vinstri græn, rúmlega 7% Viðreisn, tæplega 6% Miðflokkinn, rúmlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 5% segjast myndu kjósa Flokk fólksins.

Fylgi stjórnmálaflokka nóvember 2022

Nær 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og ríflega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um nær fjögur prósentustig frá síðustu mælingu en tæplega 46% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða nóvember 2022

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 30. nóvember 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.798 og þátttökuhlutfall var 50,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup