Samfylkingin bætir við sig rúmlega tveimur prósentustigum samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, en rösklega 7% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú. Ekki er tölfræðilega marktæk breyting á fylgi annarra flokka milli mánaða.

Fylgi flokka desember 2016

Fylgi við Viðreisn minnkar um tæplega tvö prósentustig milli mánaða og mælist fylgi flokksins nú ríflega 7%. Fylgi annarra flokka breytist um á bilinu 0,1 - 1,0 prósentustig, en 29% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, fimmtungur Vinstri græn, tæplega 15% Pírata, nær 9% Framsóknarflokkinn, sama hlutfall Bjarta framtíð og rúmlega 2% Flokk fólksins. Tæplega tvö prósent nefna aðra flokka og þar af 1% Dögun.
Liðlega 7% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 29. desember 2016. Heildarúrtaksstærð var 4.192 og þátttökuhlutfall var 59,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8-1,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup