Helsta breytingin á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Samfylkingar eykst um rúmlega tvö prósentustig og fylgi Flokks fólksins eykst um nær tvö prósentustig. Rösklega 23% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag og rúmlega 6% segjast myndu kjósa Flokk fólksins. Þetta er mesta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með síðan í desember 2010. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,1 - 1,0 prósentustig. Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 12% Framsóknarflokkinn, ríflega 11% Pírata, um 7% Viðreisn og nær sama hlutfall Vinstri græn. Tæplega 5% segjast myndu kjósa Miðflokkinn og sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands.

Fylgi_flokka_des2022_v04.jpg

Rösklega 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og næstum 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Liðlega 47% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

studningur_rikisstjorn_v01.jpg

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. desember 2022 til 2. janúar 2023. Heildarúrtaksstærð var 7.115 og þátttökuhlutfall var 48,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup