Samfylkingin eykur fylgi sitt en Viðreisn tapar fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um fjögur prósentustig milli mælinga, en næstum 18% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Viðreisnar minnkar um tvö prósentustig en rúmlega 10% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,1 prósentustig. Tæplega 22% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 12% Miðflokkinn, ríflega 11% Pírata, rösklega 10% Vinstri græn, nær 8% Framsóknarflokkinn, liðlega 4% Flokk fólksins og ríflega 3% Sósíalistaflokk Íslands. Rúmlega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórnina stendur í stað milli mælinga og segjast tæplega 47% þeirra sem taka afstöðu styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. janúar til 2. febrúar 2020. Heildarúrtaksstærð var 8.678 og þátttökuhlutfall var 51,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup