Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða, en nær 17% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Breytingar á fylgi annarra framboða eru á bilinu 0,2-1,6 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 12% Vinstri græn, tæplega 12% Pírata, næstum 10% Viðreisn, 9% Framsóknarflokkinn, nálega 7% Miðflokkinn, 5% Sósíalistaflokk Íslands og ríflega 3% Flokk fólksins. Rösklega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

48% stuðningur við ríkisstjórnina

Fylgi við ríkisstjórnina mælist einu prósentustigi lægra en fyrir mánuði síðan, en ríflega 48% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 31. janúar til 28. febrúar 2019. Heildarúrtaksstærð var 7.060 og þátttökuhlutfall var 53,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup