Helstu breytingar á fylgi flokka eru þær að fylgi Samfylkingarinnar minnkar um ríflega tvö prósentustig milli mælinga og fylgi Pírata eykst um nær tvö prósentustig. Nær 10% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag, sem er það minnsta sem flokkurinn hefur mælst með á kjörtímabilinu sem senn er á enda, og næstum 13% segjast myndu kjósa Pírata. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0-0,5 prósentustig. Liðlega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Vinstri græn, nær 11% Viðreisn, ríflega 10% Framsóknarflokkinn, rösklega 7% Miðflokkinn, rúmlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og liðlega 4% Flokk fólksins. Um einn af hverjum tíu tekur ekki afstöðu eða vill ekki gefa hana upp og rúmlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgi flokka í júní 2021

Næstum 59% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn í júní 2021

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 29. júní 2021. Heildarúrtaksstærð var 8.120 og þátttökuhlutfall var 51,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup