Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða, en 17% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Breytingar á fylgi annarra framboða eru á bilinu 0,2-1,2 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega 26% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 11% Viðreisn, tæplega 11% Pírata og sama hlutfall Vinstri græn. Rúmlega 10% segjast myndu kjósa Miðflokkinn, rúmlega 7% Framsóknarflokkinn, ríflega 6% Flokk fólksins, rösklega 1% segist myndi kjósa aðra flokka og þar af liðlega 1% Sósíalistaflokk Íslands. Næstum 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina eykst um prósentustig milli mánaða, en nær helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 31. október 2018. Heildarúrtaksstærð var 6.129 og þátttökuhlutfall var 54,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup