Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða og ná þær ekki að vera tölfræðilega marktækar. Fylgi flokka breytist um á bilinu 0,0 - 1,7 prósentustig. Rúmlega 29% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær fjórðungur Vinstri græn, tæplega 11% Framsóknarflokkinn, ríflega 10% Pírata, rösklega 8% Samfylkinguna, 6% Bjarta framtíð og sama hlutfall segist myndi kjósa Viðreisn. Liðlega fimm prósent nefna aðra flokka, þar af nær 3% Flokk fólksins og liðlega 1% Dögun. Um 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka mars 2017

Stuðningur við ríkisstjórn

Rúmlega 41% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina.

stuðningur mars 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 30. mars 2017. Heildarúrtaksstærð var 5.798 og þátttökuhlutfall var 56,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup