Helsta breytingin á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um rúmlega tvö prósentustig á sama tíma og fylgi Framsóknarflokksins minnkar um sama hlutfall. Liðlega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 13% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða um á bilinu 0-1,2 prósentustig. Ríflega 16% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, næstum 14% Pírata, tæplega 9% Viðreisn, rúmlega 8% Vinstri græn, rösklega 5% Flokk fólksins og sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands.

Fylgi flokka í september

Ríflega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og nær 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Stuðningur við ríkisstjórnina er óbreyttur frá síðustu mælingu en nær 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða í september

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. september – 2. október 2022. Heildarúrtaksstærð var 11.149 og þátttökuhlutfall var 48,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup