Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í síðustu könnun Gallup fyrir Alþingiskosningarnar sem fram fara á morgun. Sjálfstæðisflokkur mælist með 25,3 prósenta fylgi, Vinstri græn með 17,3%, Samfylking 15,5%, Miðflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn með 9,7% fylgi, þá Píratar með 9,0%, Framsóknarflokkurinn 8,9%, Viðreisn 8,2% og Flokkur fólksins með 4,0%. Aðrir flokkar mælast með minna fylgi.

Fylgi 27 okt 2017

Tæplega 4% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Greining / Fylgi flokka eftir kjördæmum

Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa/líklegast kjósa?

Greining kjördæma 27 okt 2017

Greining / Heildarfjöldi og dreifing þingmanna

Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa/líklegast kjósa?

Þingmenn 27 okt 2017

Greining / Hvaðan sækja flokkarnir fylgi sitt í dag frá kosningunum 2016

Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa/líklegast kjósa?

Flæðirit 27 okt 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net- og símakönnun sem Gallup gerði dagana 23. – 27. október 2017.

Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Gallup, en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr Þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 3.848 manns 18 ára eða eldri. Þátttökuhlutfall var 55,0%.

Heildarskýrsla Þjóðarpúlsins með greiningum