Helstu breytingar á fylgi flokka eru þær að fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mælinga, en fylgi Sósíalistaflokks Íslands eykst um tvö prósentustig. Rösklega 14% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 9% Viðreisn og næstum 6% segjast myndu kjósa Sósíalistaflokk Íslands. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mælinga, eða á bilinu 0,1-1,2 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 13% Vinstri græn, liðlega 12% Pírata, ríflega 10% Framsóknarflokkinn, rúmlega 7% Miðflokkinn og 4% Flokk fólksins. Nær 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Tæplega 58% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 28. febrúar 2021. Heildarúrtaksstærð var 9.078 og þátttökuhlutfall var 52,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup